Velkomin......
Í Veröld Mína!!!
Um mig

- Name: Stína Símalína
- Location: Kópavogur, Iceland
Ég er ofurseldur þér og uni vel. Það er annað finnst mér allt mitt hugarþel. Sem ég horfi á þig sofa finn ég að það er brotið nú í lífi mínu blað. Ég hef beðið nokkuð lengi eftir þér, svo ég segi það hreint alveg eins og er. Og ég hugsa alla daga til þín heitt. Alveg ótrúlegt hve allt er orðið breytt. Það er varla nokkur heppnari en ég. Þessi tilfinning er ævintýraleg. Ég er undir þínum áhrifum í dag. og verð áfram, enginn vafi er um það. Þú ert náttúrunnar undurfagra smíð, verður hörpu minnar strengur alla tíð. Það er ekki nokkur sem að brosir eins og þú. Og ég lofa gjafir lífsins fyrr og nú. Þú hefur löngu sigrað mig. Takmarkalaust ég trúi á þig. Mitt allt er þitt og verður ókomin ár. Ég mun elska þig allt fram á hinstu stund. Uns ég held um síð á feðra minna fund. En að líkum hef ég tímann fyrir mér og ég hlakka til að eyða honum með þér. Það er varla nokkur heppnari en ég. Þessi tilfinning er ævintýraleg.
mánudagur, júní 26, 2006
sunnudagur, júní 25, 2006
hæhó
og svo hlær hún bara þegar ég er að reyna að róa hana
eeeen allavega í gær fórum ég og óli heim til tengdó (sem eru enn í útlöndum) við buðum sollu og hjalta með okkur og við ákváðum að grilla og fara svo í pottinn. Solla og hjalti komu með Nikolai með sér og hann var hjá okkur til kl 9 þá fórum við og sóttum berglindi hún ætlaði nebnilega að passa Nikolai fyrir sollu við fórum heim til hennar og solla svæfði nikolai og svo fórum við aftur heim til tengdó. Þá var bara farið pottinn og drukkinn bjór og svonna svo fórum við á Fjörukránna , þar var víst Sólstöðuhátíð í gangi, ég bjóst nú við fullu húsi en svo var ekki var bara svona mátulega mikið af fólki þarna, þar sem solla og hjalti eru að vinna þarna fengum ég og solla nokkra frekar ódýra drykki
Það var nú bara gaman hjá okkur, en ég fór svo bara heim með óla um 3 leytið við löbbuðum frá Fjörukránni upp á stöð og tókum taxa þar. Leigubílstjórinn sagði sko að það væri BRJÁLAÐ að gera þetta kvöld , ég var nú ekki alveg að trúa honum vegna þess að við rákumst ekki á neinn leigubíl á leiðinni.....föstudagur, júní 23, 2006
Mikið að gera....
Ég tók allt aldhúsið mitt í gegn, tók til í öllum skápum og þreif hillurnar og breytti aðeins til líka svo skúraði ég gólfið svo nú á ég hreint og fínt eldhús .Þess má geta að ég skrúbbaði eldhúsgólfið á 4 fótum til þess að ná úr öllum hornum heheh. Finnst ykkur ég klikk eða?? Er ég hreingerningaróð???Mér finnst það ekki, enda ber heimili mitt ekki merki um það heehe. fimmtudagur, júní 22, 2006
Man einhver eftir þessu??
Takk stelpur, þá eru allavega 3 sem skoða þessa síðu. En í dag var ss sól og blíða, eða allavega fyrri partinn. ég og solla skelltum okkur á pallinn hjá tengdó og sóluðum okkur smá , þangað til að sólin fór og það varð frekar kalt
þá fórum við bara heim enda voru börnin frekar pirruð og vildu ekki sofa....en eygló sofnaði svo auðvitað um leið og við keyðum af stað....en svo setti ég hana bara útí vagn þegar við komum heim og hún er þar enn....var reyndar eitthvað að rumska áðan. En jæja það er best að fara að undirbúa kvöldmatinnmiðvikudagur, júní 21, 2006
KVITTA KVITTA KV ITTA
mánudagur, júní 19, 2006
17 júní búinn.....
ehehe en já við fórum svo í bæinn og fórum á fullt af stöðum svo var ég bara komin heim kl 3.30 barsta fínn tími....svo vaknaði ég eldsnemma til að hugsa um Eyglóuna mína. úff ég var nú ekki alveg í standi fyrir það en við tókum okkur svo tveggja tíma svefn eftir hádegi og kúrðum saman upp í rúmi. Við óli fórum svo í smaralindina kl 17 fórum og keyptum aðeins á Eygló og fórum svo og fengum okkur að borða á Fridays og ætluðum svo í 8 bíó en þegar við vorum búin að borða þá var klukkan sko ekki nema 6......búið að loka öllum búðum og við alveg bara hmmmm.... hvað eigum við að gera í tvo tíma???? En þá föttuðum við að myndin var sýnd kl 6 þannig að við skelltum okkur bara í 6 bíó. við fórum að sjá RV Með robin williams. Það var fín mynd, maður gat alveg hlegið af henni
En eftir myndina fórum við og sóttum Eygló sem var í pössun hjá mömmu og við fórum heim ég var svo komin í háttinn kl 23 svolítið þreytt eftir gærkvöldið......laugardagur, júní 17, 2006
ME!!!
og ef við verðum virkilega óheppin verður rok líka
og svo enduðum við kvöldið á spjalli um hitt og þetta, var mjög skemmtilegt.koddu endilega aftur fljótt Karen....og ekki gleyma Scrabblinu
mánudagur, júní 12, 2006
ahhhhhh........
ég fór á fimmtudagskvöldið út að borða með Svövu Karen og ásu, það var fínt við fórum á Pizzacompany, mér fannst reyndar pizzan þar ekkert sérstök... en það var gaman að hitta stelpurnar eftir á fórum við svo heim til Svövu að spila, ætluðum að spila hættuspil, en ég fann það ekki svo við spiluðum friendsspilið í staðinn , það tók okkur eiginlega allt kvöldið að læra spilið....en það var samt ágætt. á föstudagskvöldið fór ég svo í bíó með Svövu og Dúnu, við fórum að sjá Poseidon hún var fín, soldið stutt, það var ekkert hlé, samt fannst mér skrýtið við þessa mynd að ég sá ekki tilganginn með öllu sem skeði í þessari mynd. Á laugardaginn fórum við óli í kringluna að kaupa jakka á mig , við fundum einn rosa flottan, sem verður spari
um kvöldið fór ég svo til Sonju og ella en óli fór heim til ívars vinar síns, Eygló fór í pössun til ömmu sinnar á meðan við foreldrarnir fórum að djamma. Það var mjög gaman á djamminu , vorum fyrst heima hjá sonju og ella en fórum svo í bæinn og heimsóttum nokkra bari og fengum okkur nokkra bjóra, ég var svo komin heim um 4 bara búin á því eftir skemmtilegt djamm. En núna er verið að reka á eftir mér í háttinn svo ég verð að hættamiðvikudagur, júní 07, 2006
Góða Kveldið
og auðvitað til að sjá prinsessuna í höllinni. svo grillaði óli kjöt handa okkur og það var geggjað gott
í morgun vorum við Eygló svo komnar út snemma ,því ég var að fara til læknis út af bólgnum eitli sem ég er búin að vera með í smá tíma, læknirinn sagði bara að þetta myndi lagast, en ef þetta væri ekki farið eftir viku 10 daga ætti ég að koma aftur
hún vildi bara ekkert gera fyrir mig kellingin....sunnudagur, júní 04, 2006
Ferðasagan
En já við lögðum ss af stað upp úr hádegi og keyrðum alla leið á búðir á snæfellsnesi. við vorum komin þangað um kl 14 við komumst að því að Hótelið sem við gistum á var mjög flott við fengum herbergi á 3. hæð með rosa þægilegu rúmi og baði!! Reyndar minnsta bað sem ég hef séð en ég meina hey...... Hótelið var svo alveg við sjóinn og það var rosalega fallegt alltí kring. við hittum Brúðgumann sem var alveg að farast úr stressi
Við settumst svo bara niður og fengum okkur að drekka. Kl 17 fórum við svo upp á herbergi til að gera okkur tilbúin því brúðkaupið átti að byrja kl 18þegar við komum niður kl 17.45 komumst við að því að brúðkaupinu var seinkað um hálftíma við bara æji jæja best að setjast nú niður og bíða við biðum í örugglega meira en hálftíma....en loksins....loksins kom systir brúðarinnar
þá stóðu allir upp og löbbuðu út og á stað þar var soldið stór og grænn grasblettur , þetta var eiginlega líka soldið upp á kletti og fyrir neðan var fjaran og sjórinn , svo þetta var mjög flottur staður sem þau höfðu valið með úsýni yfir sjóinn. Það var búið að raða upp bekkjum þar sem gestirnir gátu setið. Þetta var ásatrúarbrúðkaup þannig að fremst stóð Goðið mikla hann Jörmundur. Svaka flottur með skikkju og mikið skegg.Svo komu Brúðhjónin og Brúðkaupið gat byrjað , sem betur fer , því öllum var orðið frekar kalt!!
. Brúðkaupið var haft bæði á Íslensku og ensku svo að útlendingarnir okkar gætu skilið hvað um væri að vera!!Þetta tók í sjálfu sér ekki langan tíma , en var voða fallegt samt, Svo var öllum boðið aðeins neðar og nær sjónum, þar sem biðu þjónar og þeir voru búnir að hella upp á kampavín og allir tóku sér glas og skáluðu fyrir brúðhjónunum. En svo var bara haldið´upp á hótel aftur. Þar hófst bið!!
Þar sem að brúðhjónin fóru í myndatöku og þá var bara fengið sér bjór eða hvítvín eða rauðvín eða kampavín........
Margir voru komnir soldið í glas eftir alla þessa bið en loksins um 20 leytið komu brúðhjónin og þá gátum við haldið inn í borðsal.....Allir fengu voða sætan poka úr ull sem í var orkusteinn sem var tíndur á snæfellsjökli. Mjög flott.... Svo kom forrétturinn það var humarsúpa... mér fannst hún ekkert sérstaklega góð
eftir það biðum við í ca klukktíma eftir næsta rétt sem var einhver voða fínn ostur vafinn í pharmaskinku, það var reyndar alveg ágætt, en ég og Rakel fengum alveg sjokk þegar þetta var borið fram, því við héldum að þetta væri aðalrétturinn, þetta var sko pínulítið, en við höfðum rangt fyrir okkur, þetta var ekki aðalrétturinn, Aðalrétturinn kom svo þegar klukkan var að ganga 1 um ´nóttina!!! Já það er rétt kl 1 vorum við ekki enn búin að fá kvöldmat, enda var fólk orðið mjög órólegt og drukkið, ég man eiginlga ekki hvernig kjötið smakkaðist, því ég var orðin svo svöng að ég bara hámaði þetta í mig!!
eftir það byrjaði eitthvað myndband síðan brúðguminn var steggjaður og eitthvað siðan kom eftirréttur kl næstum vþi 2 um nóttina!!! eftir það vorum við bara orðin svo þreytt að við nenntum ekki meir!! Við vorum nokkur sammála um það að ef þeir hefðu bara sleppt eitthvað af þessum forréttum og borið bara strax fram aðalréttinn hefði það verið mikið betra þá hefðum við örugglega skemmt okkur betur. En við fórum ss bara upp að sofa enda Dauðþreytt....ég óli sváfum svo til kl 11 í morgun og úff hvað það var gott
við áttum svo að tékka okkur út á hádegi svo við tókum bara saman dótið okkar og fórum niður... við misstum af morgunmatnum
Svo við kvöddum bara alla og keyrðum svo á eftir Bjössa , hann ætlaði að sýna okkur eitthvað voða flott.....hann sagði "jájá það er sko ekkert langt bara 10 mínútur" og við bara já ókei meiri hlutinn af leiðinni var lélegur malarvegur og þetta tók sko aðeins meira en 10 mínútur sko......en þegar við komum þangað sáum við hvað það var sem hann var að sýna okkur og það var rosa flott við stóðum yfir sjónum og þar var fjara svo að allt bergið sást og það var ekkert smá flott. við höfðum líka ætlað okkur að fá okkur að borða þarna en við óli erum svo snobbuð að við gátum sko ekki borðað í pínulitlum skúr sem var svo troðfullur af túristum að það var varla pláss fyrir okkur....enda langaði okkur líka í eitthvað almennilegt að borða svo við keyrðum bara til baka og alla leið inní borgarnes þar sem við fengum okkur hamborgara þegar við komum svo heim fórum við með dótið okkar inn og fórum svo og sóttum Eygló
föstudagur, júní 02, 2006
veislan buin........
þegar við svo mættum var enginn kominn nema bara íslenskir ættingjar og brúðhjónin auðvitað auðvitað voru allir að dáast að dömunni minni
og ég fékk sko að heyra oft í kvöld hvað hún væri falleg *MONT*
en svo komu
og svo var líka humarsúpa og svo pulsur fyrir þá matgrönnu eins og mig
ég bar svo fram eplasnafsa handa öllum sem kanarnir jöpluðu á og sögðu"mmm Delicious" en allt þetta fólk var bara mjög nice og við óli vorum alveg sammála um það, að við gætum jafnvel haft gaman að því að fara í þetta brúðkaup. Jepp við vorum sko búin að fussa og sveia yfir þessu öllu og til hvers í ósköpunum þau voru að hafa svona mikið fyrir þessu og við alveg "neyddumst" til að fara...en núna höldum við að þetta verði bara gaman, mamma ætlar að vera með Eygló og við verðum í eina nótt og það gæti meiraðsegja verið að maður fái sér aðeins í aðra tána!! 
Við fórum svo bara heim Eygló var orðin svo pirruð og þreytt, seme r alveg skiljanlegt.og hún fór svo bara beint í háttinn og ég er búin að hanga hér í tölvunni síðan









